Eftir að hafa verið fullur í tvær
vikur samfellt erum við stúlkur enn ekki komnar með áfengisónæmi í
blóð heldur höldum við ótrauðar áfram sem drykkfelldir
víkingar.
Já pæling mín var að fara á busaball
Verzló, þar sem ég missti af mínu eigin
balli.Ég
mun líklegast dulbúa mig, pilsi sem rétt nær yfir píkuna,
glimmerbol og glimmerhárkollu ..Hver er annars
tískan i Verzló þessa dagana?
Annars hef ég heyrt að það sé mjög
inn að raka af sér augnbrýrnar í MH..
Veit ekki hvorn lit ég ætti að sýna
þar.
Eins og Edda sagði á síðu sinni
er ég hjartanlega sammála um að ný bústaðarferð verður að
komast í framleiðslu. Annars segi ég ..Hvað með
Akureyrarferðina miklu??
Eins og flestir MH-ingar vita er alls
ekki langt i vetrarfríið okkar, en það er frá 6. okt –10.
okt. Væri ekki upplagt
að kíkja til Akureyrar helgina þarna og leigja einhvert
húsnæði? ..kíkja á
góðkunnan stað sem kallast ,,Oddvitinn’’, syngja í karókí og taka
nokkur ölvuð spor á Sjallanum. Fá sér bát mánaðarins á
Subway. Borða
dýrindismáltíð á Greifanum. ..Bautanum? Fara í ísbíltúr í
Brynjuís..
Þið skuluð allavega velta þessu fyrir
ykkur, ..annars er Melrose place að byrja.
Dee